Informations de l'offre d'emploi
Flugliðar - Taktu flugið með okkur
InternetJobs Keflavík, Islande 149 Jours Depuis

Aperçu
Type d'emploi: Plein temps
Durée:
Gamme salariale: € par accord - Par mois
Vacance du terrain: Articles divers
pour les spécialistes:
Publié: 2023-11-30
Code postal:
Exigences
Études minimales: Université
Expérience minimale: 3 ans
Genre: N'a pas d'importance
Âge: De - À
Visa de travail: Passeport de l'UE
Statut de l'offre d'emploi
Date de publication: 2023-11-30
Fin de publication: 2024-05-29
Lieux libres: 1
Nombre de vues: 356
Prochaines étapes: Envoyez-moi votre CV

Les contacts de l'employeur sont disponibles uniquement pour les utilisateurs autorisés: Identifiant & Inscription

Information sur l'employeur InternetJobs Keflavík, Islande
Share on Google+ Friend Feed Share on Blog Linkedid MySpace Twitter Yahoo Share on Digg Share on facebook
Pays: Islande
Description

Við leitum að jákvæðum og áhugasömum einstaklingum í starf flugliða hjá félagi á fullri ferð inn í framtíðina. Í boði eru stöður til lengri tíma (frá vetri 2023) sem og sumarstörf (sumar 2024).

Heimahöfn flugliða er í Keflavík og sjá áhafnarmeðlimir sjálfir um að koma sér til og frá vinnustað. Því er mikilvægt að umsækjendur séu með bílpróf og hafi bíl til umráða.

Byrjað verður að vinna úr umsóknum um leið og þær berast.

STARFSSVIÐ:

Flugliðar PLAY eru andlit félagsins út á við. Þeir eru hluti af öflugu teymi sem tryggir öryggi farþega ásamt því að veita framúrskarandi þjónustu um borð í glæsilegum vélum félagsins. Í dag er flogið til fjölda skemmtilegra áfangastaða í Evrópu og Norður Ameríku.

HÆFNISKRÖFUR:

Við leitum að félagslyndum, brosmildum og jákvæðum einstaklingum sem hafa leikgleðina að leiðarljósi og langar að bætast í hóp framúrskarandi flugliða.

Búseta á höfuðborgarsvæðinu eða næsta nágrenni og mjög góð enskukunnátta er skilyrði. Önnur tungumálakunnátta er kostur. Eingöngu umsækjendur fæddir 2004 eða fyrr koma til greina.

Til að fá starfstilboð sem flugliði þarf umsækjandi að standast þjálfun, sundpróf, heilsufars- og bakgrunnsskoðun.

UMSÓKN ÞARF AÐ FYLGJA:

Ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar
Nýleg mynd af umsækjanda
Afrit af vegabréfi þar sem sést útgáfudagur, gildistími og vegabréfsnúmer
ÞAU SEM HAFA FYRRI STARFSREYNSLU SEM FLUGLIÐAR EÐA HAFA LOKIÐ GRUNNÞJÁLFUN SKULU SKILA INN:

Afrit af Attestation of Initial Training
Afrit af heilsufarsskírteini (medical report)
Kaup og kjör fylgja kjarasamningi á milli PLAY og ÍFF.

Um PLAY

PLAY er íslenskt lágfargjaldaflugfélag sem býður flug til vinsælla áfangastaða á sem hagkvæmastan hátt fyrir farþega og náttúru. Með nýlegum Airbus A320neo og A321neo flugvélum er dregið sem mest úr losun gróðurhúsalofttegunda og þannig leitast við að koma fólki á áfangastað með sem minnstu kolefnisfótspori.

Hjá PLAY er öryggið alltaf í fyrsta sæti og áhersla lögð á stundvísi, einfaldleika, gleði og hagstæð verð.

Hjá PLAY er verið að byggja upp fjölbreyttan starfshóp og einstakan starfsanda. Áhersla er lögð á að skapa starfsmönnum öruggt og jákvætt starfsumhverfi sem er laust við mismunun og hvers konar áreitni. Við viljum bæta í þennan hóp drífandi og kraftmiklu fólki sem vill taka þátt í að breyta íslenskri flugsögu.




Emploi par ville Trier par

Emplois par région Trier par

Offres d'emploi par spécialités
Postuler maintenant